Sjómannamessa kl. 11

Deildu þessu:

Á Sjómannadag, sunnudaginn 5. júní verður Sjómannamessa kl. 11. Að lokinni guðsþjónustu verður blómsveigur lagður að minnismerki um látna sjómenn suður af kirkjunni. Kirkjukór Húsavíkur syngur undir stjórn Judit György. Sóknarprestur þjónar. Sjómannsfjölskyldur hvattar til að fjölmenna.