Það er ekki á hverjum degi sem mæðgur eru skírðar í sömu athöfninni. Í dag voru mæðgurnar Yulia Gogacheva og Eyja Alexandra skírðar í Húsavíkurkirkju. Eiginmaður Yuliu er Óskar Jóhannsson. Fjölskyldan er búsett að Grundargarði 5 á Húsavík. .
Skírnarvottar voru Tryggvi Jóhannson og Aðalsteinn Jóhannes Halldórsson. Sóknarprestur hefur skírt börn og unglinga á sínum starfsferli en aldrei fyrr mæðgur í sömu athöfninni. Skírnarþegar eru boðnir hjartanlega velkomnar í Þjóðkirkjuna og árnað heilla á guðsríkisbraut