Guðsþjónusta og messukaffi

Deildu þessu:

Á Uppstigningardag, fimmtudaginn 9. maí verður Guðsþjónusta kl. 14.00 í kirkjunni. Sólseturskórinn, kór eldri borgara syngur undir stjórn Judit György. Sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Messukaffi í Bjarnahúsi í boði sóknarnefndar að lokinni guðsþjónustu. Þessi dagur er helgaður öldruðum í kirkjum landsins. Fjölmennum!