Fermingarbörn á Húsavík ganga í hús mánudaginn 2 nóvember 2015 frá kl. 18.00 -20.00 og safna peningum í innsiglaða bauka til styrktar vatnsverkefnum Hjálparstarfs kirkjunnar í Úganda og Eþíópíu í Afríku. Í fyrra söfnuðu fermingarbörn á landinu rúmlega 8 milljónum króna. Tökum vel á móti fermingarbörnunum og leggjum okkar af mörkum. Sjá vefsíðuna www.help.is
Með fyrirfram þakklæti
Sr. Sighvatur Karlsson og Guðbergur Ægisson fulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar