Fermingarbarnasöfnun fyrir Hjálparstarf kirkjunnar

Deildu þessu:

Hin árlega söfnun fyrir Hjálparstarf kirkjunnar verður mánudaginn 5. nóvember. Þá ganga fermingarbörn í sókninni í hús á Húsavík og safna fjármunum í innsiglaða bauka merkta Hjálparstarfi kirkjunnar frá kl. 18-20. Fermingarbörnunum hefur verið mjög vel tekið undanfarin ár. Þessi söfnun vegur þungt í fjáröflun Hjálparstarfs kirkjunnar. Fjármununum hefur verið varið í ýmis verkefni í Afríku þar sem Hjálparstarfið hefur átt gott samstarf við heimamenn, m.a. hafa verið byggðir vatnsbrunnar í þorpum.