Af organistamálum

Deildu þessu:

Við flytjum þau ánægjulegu tíðindi að nokkrar sóknir í Þingeyjarsýslu hafa sameinast um

að ráða organista í fullt starf við að efla söng og tónlistarstarf innan sinna sókna.

Um er að ræða sóknir í Grenjaðarprestakalli,  Skútustaðaprestakalli og Húsavíkursókn.

Starfið var auglýst á haustdögum og sóttu margir hæfir umsækjendur um stöðuna.

Ákveðið var að ráða Attila Szebik, 48 ára Ungverja

sem hefur töluverða starfsreynslu af kirkjulegu tónlistarstarfi. m.a. dálitla hér á Íslandi.

Nokkur töf mun þó verða á að Attila geti hafið störf,

því samkomutakmarkanir setja kór- og safnaðarstarfi miklar skorður.

Við fögnum þessum áfanga og allir hlakka til að fá öflugan fagmann í starf sóknanna.