Húsavíkurkirkja

 

Yulia og Eyja Alexandra skírðar

Mæðgurnar Yulia Gogacheva og Eyja Alexandra, Grundargarði 5 voru skírðar í Húsavíkurkirkju fimmtudaginn 27. september. Skírnarvottar: Tryggvi Jóhannsson og Aðalsteinn Jóhannes Halldórsson.

Sighvatur Karlsson, 27/9 2007

Mæðgur skírðar í Húsavíkurkirkju

Mæðgur skírðarÞað er ekki á hverjum degi sem mæðgur eru skírðar í sömu athöfninni. Í dag voru mæðgurnar Yulia Gogacheva og Eyja Alexandra skírðar í Húsavíkurkirkju. Eiginmaður Yuliu er Óskar Jóhannsson. Fjölskyldan er búsett að Grundargarði 5 á Húsavík. .

Lesa áfram …

Sighvatur Karlsson, 27/9 2007

Kirkjuheimsókn úr Borgarhólsskóla

Kirkjuheimsókn úr BorgarhólsskólaÞau Ágúst, Valur, Þórdís Ása og Jana Björg úr 5.bekk, 6. stofu lögðu leið sína í Húsavíkurkirkju í morgun til þess að leggja nokkrar spurningar fyrir sóknarprestinn.Merkilega og forvitnilega hluti bar fyrir augu og börnin spurðu prestinn um allt milli himins og jarðar. Hann sagði þeim hvað þeir heita og til hvers þeir eru notaðir.

Lesa áfram …

Sighvatur Karlsson, 27/9 2007

Sigtryggur Kristjánsson er látinn

Sigtryggur Kristjánsson, Stóragarði 5, Húsavík lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 26. september.Útför hans fer fram frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 6. október kl. 14.

Sighvatur Karlsson, 27/9 2007

Barnastarfið að hefjast

Sunnudagaskólabörn í HvammiBarnastarf kirkjunnar hefst n.k. sunnudag kl. 11 í kirkjunni. Sóknarprestur hefur umsjón með því ásamt Adrianne Davis tónlistarkennara. Unglingar og væntanleg fermingarbörn aðstoða.Auk þess að syngja mikið þá fá börnin að heyra Biblíusögu á hverjum sunnudegi, síðan læra þau setningu dagsins og að lokum er lesin sagan um Danna og Birtu en þau eru aðalsöguhetjur Kirkjubókarinnar sem börnin fá gefins. Kirkjubókinni fylgir poki og fallegir límmiðar sem börnin geta safnað í hana.

Lesa áfram …

Sighvatur Karlsson, 24/9 2007

Hákon Logi skírður

Hákon Logi Eggertsson var skírður 22. september. Foreldrar hans eru Eygló Logadóttir og Eggert Hákonarson, Reykjavíkurvegi 42, Hafnarfirði. Skínarvotar: Þórsteinunn R. Sigurðardóttir og Jóhanna Sigríður Logadóttir.

Sighvatur Karlsson, 22/9 2007

Helgi Vatnar skírður

Helgi Vatnar Hreiðarsson var skírður 8. september s.l. Foreldrar hans eru Sigrún Herdísardóttir og Hreiðar Hreiðarsson, Lyngholti 2, Húsavík. Skírnarvottar: Herdís Steingrímsdóttir, Elín Steingrímsdóttir og Arnheiður Rán Almarsdóttir.

Sighvatur Karlsson, 22/9 2007

Messuboð til fermingarbarna og foreldra þeirra

N.k sunnudag 23. september verður sungin messa í Húsavíkurkirkju kl. 14. Þess er vænst að verðandi fermingarbörn og foreldrar þeirra geti sótt þessa messu. Að aflokinni messu verður fundur um fermingarstörfin á veitingahúsinu Sölku þar sem störfin verða kynnt og fermingardagar ákveðnir.

Sighvatur Karlsson, 17/9 2007

Sigríður Jónína Jónasdóttir er látin

Sigríður Jónína Jónasdóttiir, Dvalarheimilinu Hvammi lést 12. september. Útför hennar verður gerð frá Húsavíkurkirkju föstudaginn 21. september kl. 14

Sighvatur Karlsson, 15/9 2007

Ólafur Guðmundsson er látinn

Ólafur Guðmundsson, Skólastíg 3 lést 10 ágúst. Útför hans fór fram frá Húsavíkurkirkju 20. ágúst.

Sighvatur Karlsson, 15/9 2007

Húsavíkurkirkja er opin ferðafólki. Upplýsingar s. 464 2136. Verið velkomin í Húsavíkurkirkju til að skoða hana og eiga þar kyrrðarstund.

Viðtalstímar

Sighvatur Karlsson, sóknarprestur

Virka daga frá kl. 11-12 s. 464 1317, farsími 861 2317

Öðrum tímum eftir samkomulagi

sighvatur.karlsson@kirkjan.is

Meðhjálpari:
Guðbergur Ægisson s. 897 7836
Umsjón með útförum:
Margrét Þórhallsdóttir s. 860 7733
Kirkjugarðsvörður:
Hilmar Dúi Björgvinsson s. 898 8389

 

Húsavíkurkirkja. Sími 464 2136 , fax 464 1317 · Kerfi RSS