Um kl. 18 í gær héldu 31 fermingarbörn af stað með 20 söfnunarbauka og gengu í hús á Húsavík og söfnuðu peningum fyrir Hjálparstarf kirkjunnar. Þau skiluðu síðan baukunum á veitingahúsið Sölku um kl. 20 þar sem sóknarnefnd kirkjunnar bauð þeim upp á pizzuhlaðborð.
Lesa áfram …
Sighvatur Karlsson, 6/11 2007
Hin árlega söfnun fyrir Hjálparstarf kirkjunnar verður mánudaginn 5. nóvember. Þá ganga fermingarbörn í sókninni í hús á Húsavík og safna fjármunum í innsiglaða bauka merkta Hjálparstarfi kirkjunnar frá kl. 18-20. Fermingarbörnunum hefur verið mjög vel tekið undanfarin ár. Þessi söfnun vegur þungt í fjáröflun Hjálparstarfs kirkjunnar. Fjármununum hefur verið varið í ýmis verkefni í Afríku þar sem Hjálparstarfið hefur átt gott samstarf við heimamenn, m.a. hafa verið byggðir vatnsbrunnar í þorpum.
Sighvatur Karlsson, 31/10 2007
Á Allra heilagra messu, n.k. sunnudag kl. 14 verður sungin guðsþjónusta í kirkjunni. Kirkjukór Húsavíkur syngur undir stjórn Judit György. Þar verður minnst þeirra er látist hafa s.l. tólf mánuði. Aðstandendum gefst kostur að koma með blómvönd til kirkju í minniingu ástvina sinna og láta þá á altari kirkjunnar og fara síðan með þá út í kirkjugarð að athöfn lokinni. Allir eru velkomnir.
Sighvatur Karlsson, 31/10 2007
Sören Einarsson, Hvammi, lést á Sjúkrahúsi Húsavíkur í nótt. Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju fimmtudaginn 1. nóvember kl. 14.
Sighvatur Karlsson, 22/10 2007
Nýja Biblíuútgáfan var afhent Húsavíkurkirkju við hátíðlega athöfn í upphafi messu sunnudaginn 21. október. Kertaberar voru Jóney Ósk Sigurjónsdóttir og Helga Gunnarsdóttir. Heiðdís Hafþórsdóttir hélt á nýju Biblíunni. sr. Sighvatur Karlsson sóknarprestur flutti bænarorð og las úr Biblíunni sem hann gaf kirkjunni ásamt fjölskyldu sinni í tilefni aldarafmælis kirkjunnar 2. júní s.l.
Lesa áfram …
Sighvatur Karlsson, 21/10 2007
Ný Biblíuútgáfa verður afhent söfnuðinum við hátíðlega athöfn í messu n.k. sunnudag 21. október kl. 14. Biblían er gjöf prestsfjölskyldunnar til kirkjunnar í tilefni af aldarafmæli hennar í ár. Um viðburð er að ræða vegna þess að þýðing biblíunnar hefur staðið yfir undanfarna áratugi af frummálinu og fjöldi einstaklinga hefur komið að þýðingarvinnunni. Kirkjukór Húsavíkur syngur undir stjórn Judit György. Sóknarbörn eru hvött til þess að fjölmenna og taka með sér gesti.
Sighvatur Karlsson, 16/10 2007
Fyrsta gospelmessa vetrarins verður í Húsavíkurkirkju n.k. sunndagskvöld 14.október kl. 20. Stjórnandi er Guðni Bragason. Í boði verður lofgjörð, hugleiðing og bænagjörð. Hvernig væri að kíkja í gospelmessu og hlýða á fallegan gospelsöng á Drottins degi? Þú ert velkomin/n
Sighvatur Karlsson, 11/10 2007
Guðmundur G. Halldórsson, Hvammi lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 3.október. Útför hans fer fram frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 13. október kl. 14.
Sighvatur Karlsson, 3/10 2007
Fermingarárgangur vetrarins telur um 40 börn. Að venju var efnt til fermingarbúða að Kirkjumiðstöðinni við Vestmannsvatn síðla ágústmánaðar þar sem börnin dvöldu í tæplega tvo sólarhringa. Börnin sóttu síðan messu s.l. sunnudag ásamt foreldrum sínum. Að aflokinni messu bauð sóknarnefnd þeim upp á veitingar á veitingahúsinu Sölku þar sem fermingarstörfin voru kynnt og fermingardagar vorsins ákveðnir. Í messunni vöktu börnin athygli kirkjugesta fyrir það hversu hljóð og stillt þau voru er þau hlýddu á ræðuna.
Sighvatur Karlsson, 29/9 2007
Aron Bjarki var skírður laugardaginn 29. september að Sólvöllum 1. Foreldrar hans eru Sylvía Rún Hallgrímsdóttir og Kristján Friðrik Sigurðsson, Hjarðarhóli 1 Húsavík. Skírnarvottar: Auður Hallgrímsdóttir og Hallgrímur Hallsson.
Sighvatur Karlsson, 29/9 2007