Vortónleikar Kirkjukórs Húsavíkur voru tileinkaðir Friðriki Jónssyni frá Halldórsstöðum í Reykjadal sem fékkst við organistastörf, harmonikkuleik og tónlistarstörf í rúma sex áratugi. Kórstjóri var Judit György og undirleikarar, léttsveit kórsins: Aladár Rácz á piano, Sigurður Friðriksson á harmonikku og Unnsteinn Júlíusson á kontrabassa. Kórinn söng fyrir fullu húsi í kirkjunni og á Breiðumýri. Dagskráin mæltist afar vel fyrir enda fór kórinn afar vel með lögin sem Fikki samdi. Sjálfur hreifst ég af einsöng Sigurðar Friðrikssonar er hann söng Rósina við lag föður síns.. Til stendur að taka tónleikana upp í haust.
Sighvatur Karlsson, 14/5 2008
Viðar Þórðarson, Uppsalavegi 17, Húsavík lést á sjúkrahúsi Húsavíkur mánudaginn 12. maí. Útför hans verður auglýst síðar.
Sighvatur Karlsson, 13/5 2008
Kristjana Magnúsdóttir Kleppsvegi 76, Reykjavík lést 3. maí. Útför hennar fór fram í kyrrþey mánudaginn 12. maí frá Húsavíkurkirkju.
Sighvatur Karlsson, 13/5 2008
Gospelkórínn heldur tvenna tónleika í kvöld, 9. maí, í kirkjunni kl. 20 og 22. í fyrra urðu margir frá að hverfa vegna þess að kirkjan varð yfirfull. Að þessu sinni syngja tveir gestasöngvarar með kórnum. Aðgangseyrir er kr. 500 en kórinn fer í tónleikaferðalag til Svíþjóðar í lok ágúst og rennur eyririnn í ferðasjóð.Guðni Bragasson stjórnar kórnum og leikur á hljómborð ásamt fleiri hljóðfæraleikurum sem ýmist þenja súðir eða bassa. Nú er bara að drífa sig í kirkjuna í kvöld og skemmta sér, - fram á rauða nótt.
Sighvatur Karlsson, 9/5 2008
Að þessu sinni ber Uppstigningardag upp á fimmtudaginn 1. maí. Uppstigningardagur hefur verið helgaður öldruðum í þjóðkirkjunni undanfarin ár. Að þessu sinni verður sungin messa í Húsavíkurkirkju þennan dag kl. 11. Sólseturskórinn syngur undir stjórn Aladár Rácz. Ræðumaður að þessu sinni er: Benedikt Sigurðarson, framkvæmdastjóri Búseta á Norðurlandi eystra. Sóknarprestur þjónar fyrir altari.
Sighvatur Karlsson, 29/4 2008
Aðalfundur Húsavíkursóknar verður haldinn í Kirkjubæ miðvikudaginn 30. apríl kl. 20.00 Venjuleg aðalfundarstörf. Fjölmennum.
Sighvatur Karlsson, 29/4 2008
Fermingarmessa verður sunnudaginn 20. apríl kl. 10.30 Átta börn verða fermd. Kirkjukór Húsavíkur syngur undir stjórn Judit György. Allir velkomnir í messuna.
Sighvatur Karlsson, 19/4 2008
Þormóður Jónsson lést 15.apríl í Hvammi. Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju miðvikudaginn 23. apríl kl. 14.
Sighvatur Karlsson, 18/4 2008
Sigríður Schiöth lést á dvalarheimilinu Hlíð aðfararnótt 18. apríl. Útförin auglýst síðar.
Sighvatur Karlsson, 18/4 2008
Gospelmessa verður n.k. sunnudagskvöld 13. apríl kl. 20. Að vanda syngur gospelkór kirkjunnar undir stjórn Guðna Bragasonar. Prófastur, Jón Ármann Gíslason þjónar. Sóknarbörn eru hvött til þess að fjölmenna.
Sighvatur Karlsson, 12/4 2008