Húsavíkurkirkja

 

Valgerður Sigfúsdóttir er látin

Valgerður Sigfúsdóttir frá Vogum í Mývatnssveit, til heimilis að Sólbrekku 26 á Húsavík lést 6. febrúar á sjúkrahúsinu á Húsavík. Útför hennar var gerð frá Húsavíkurkirkju 14. febrúar.

Sighvatur Karlsson, 16/2 2009

Hafliði Jónsson er látinn.

Hafliði Jónsson, Vallholtsvegi 15, lést 18. janúar 2009 . Útför hans var gerð frá Húsavíkurkirkju 24. janúar.

Sighvatur Karlsson, 16/2 2009

Arnar Ingi Hrólfsson skírður

Arnar Ingi var skírður að heimili sínu föstudaginn 9. janúar. Foreldrar hans eru Erla Torfadóttir og Hrólfur Jón Flosason, Grundargarði 6, Húsavík. Skírnarvottar: Friðbjörn Óskarsson, Halldóra Kristjánsdóttir og Lilja Friðriksdóttir.

Sighvatur Karlsson, 10/1 2009

Sigmundur Þorgrímsson skírður

Sigmundur Þorgrímsson var skírður 28. desember í Kiwanishúsinu en það mun sennilega vera fyrsta helgiathöfnin sem þar hefur farið fram. Foreldrar hans eru Anna Dóra Gestsdóttir og Þorgrímur Sigmundsson, Auðbrekku 8, Húsavík. Skírnarvottar: Anný Peta Sigmundsdóttir og Gestur Kristjánsson.

Sighvatur Karlsson, 28/12 2008

Andri Bergmann Steingrímsson skírður

Andri Bergmann Steingrímsson var skírður 27. desember. Foreldrar hans eru María Þórdís Guðmundsdóttir og Steingrímur Kristinn Sigurðsson, Fossvöllum 23. Skírnarvottar: Hrannar Björn Steingrímsson og Hallgrímur Mar Steingrímsson.

Sighvatur Karlsson, 27/12 2008

Hrafnhildur Brynja Villbergsdóttir skírð

Hrafnhildur Brynja Vilbergsdóttir var skírð 27. desember. Foreldrar hennar eru Eyrún Ýr Tryggvadóttir og Vilberg Njáll Jóhannesson, Sólbrekku 9, Húsavík. Skírnarvottar: Jóhannes Geir Einarsson og Friðrik Björnsson.

Sighvatur Karlsson, 27/12 2008

Patrekur Jón Stefánsson skírður

Patrekur Jón Stefánsson varið skírður 6. desember. Foreldrar hans eru Ellen Mjöll Hallgrímsdóttir og Stefán Friðrik Stefánsson, Laugarholti 3 d, Húsavík. Skírnarvottar: Árninna Ósk Stefánsdóttir og Þuríður Hallgrímsdóttir.

Sighvatur Karlsson, 27/12 2008

Messur um jól og áramót

Helgihald um jól og áramót í kirkjunni verður með hefðbundnu sniði. Aftansöngur á aðfangadag kl. 18. Miðnæturmessa kl. 23.30. Á jóladag verður hátíðarguðsþjónusta kl. 14 og á gamlársdag verður Aftansöngur kl. 18. Í messunni á gamlársdag flytur hugvekju Aðalsteinn Baldursson formaður Framsýnar. Kirkjukór Húsavíkur syngur í messsunum undir stjórn kirkjuorganistans Judit György. Fjölmennum í helgihald jóla og áramóta.

Sighvatur Karlsson, 22/12 2008

Jóla-og kaffihúsastemning í Bjarnahúsi

Fimmtudaginn 18. desember kl. 16 opnaði Bjarnahús jóla-og kaffihús með söng Ínu Valgerðar við gítarleik Guðna Braga. Fólk á öllum aldri leit við og naut fallegra tóna um stund. Bjarnahús verður opið seinni part dags fram að jólum nema á sunnudag. Fjölbreytt dagskrá er í boði sem verður kynnt jafnóðum hér til hliðar á síðunni. Verið velkomin.

Sighvatur Karlsson, 18/12 2008

Fjölmenni í Jólastund fjölskyldunnar

Um 140 sóttu jólastund fjölskyldunnar í Húsavíkurkirkju þriðja sunnudag í aðventu, 14. desember.Fram komu fermingarbörn, börn úr TTT, sunnudagaskólanum, nemendur úr tónlistarskólanum. Mæðgurnar Hulda Björk og Ragnheiður Diljá sungu jólalög. Stekkjastaur kom í heimsókn í kirkjuna ásamt Mýslu og Músapésa og skemmtu börnunum. Almennur söngur var við undirleik Judit György. Að lokum sungu allir saman sálminn Heims um ból.

Sighvatur Karlsson, 14/12 2008

Húsavíkurkirkja er opin ferðafólki. Upplýsingar s. 464 2136. Verið velkomin í Húsavíkurkirkju til að skoða hana og eiga þar kyrrðarstund.

Viðtalstímar

Sighvatur Karlsson, sóknarprestur

Virka daga frá kl. 11-12 s. 464 1317, farsími 861 2317

Öðrum tímum eftir samkomulagi

sighvatur.karlsson@kirkjan.is

Meðhjálpari:
Guðbergur Ægisson s. 897 7836
Umsjón með útförum:
Margrét Þórhallsdóttir s. 860 7733
Kirkjugarðsvörður:
Hilmar Dúi Björgvinsson s. 898 8389

 

Húsavíkurkirkja. Sími 464 2136 , fax 464 1317 · Kerfi RSS