Húsavíkurkirkja

 

Haraldur og Berglind í hjónaband

Berglind Júlíusdóttir og Haraldur Reinhardsson, Grundargarði 6, Húsavík, voru gefin saman í hjónaband í Húsavíkurkirkju laugardaginn 11. apríl af sr. Sighvati Karlssyni. Svaramenn: Reinhard Reynisson og Júlíus Bessason

Sighvatur Karlsson, 11/4 2009

Hátíðarguðsþjónusta á Páskadag kl. 10.30

Hátíðarguðsþjónusta á Páskadag, 12. apríl verður sungin kl. 10.30. Kirkjukór Húsavíkur syngur hátíðarsöngva sr. Bjarna Þorsteinssonar undir stjórn kirkjuorganistans Judit György. Níu börn verða fermd í messunni. Sóknarbörn eru hvött til að fjölmenna í guðsþjónustuna.

Sighvatur Karlsson, 6/4 2009

Páskavaka á aðfangadagskvöld Páska, 11. apríl.

Á aðfangadagskvöld Páska, laugardagskvöldið 11. apríl kl. 23.30 verður haldin Páskavaka í Húsavíkurkirkju en hefð hefur nú skapast fyrir henni. Um er að ræða áhrifaríka stund í kirkjunni í aðdraganda Páskadags sem fermingarbörn og foreldrar þeirra hafa sameinast um að gera sem áhrifaríkasta ásamt organista og Kirkjukór Húsavíkur.

Lesa áfram …

Sighvatur Karlsson, 6/4 2009

Passíusálmarnir lesnir í heild sinni á Föstudaginn langa

Á Föstudaginn langa verða Passíusálmar Hallgríms Péturssonar lesnir í held sinni frá kl. 13 í kirkjunni af sóknarbörnum og sóknarpresti. Tónlist verður leikin af geisladiski eftir fimmta hvern sálm. Sóknarbörn eru hvött til að leggja leið sína í kirkjuna, staldra við og hlýða á lesturinn um stund. Gestabók liggur frammi í andyri sem gestir eru beðnir að rita nöfn sín í.

Lesa áfram …

Sighvatur Karlsson, 6/4 2009

Gospelmessa á Boðunardegi Maríu, 29. mars kl. 20

Gospelmessa verður á sunnudagskvöld 29. mars kl. 20. Gospelkór Húsavíkurkirkju syngur undir stjórn Guðna Bragasonar. Þessi sunnudagur er helgaður Maríu, móður Jesú. Hugleiðing sóknarprests tekur mið af því. Fermingarbörn aðstoða með lestri lexíu og pistils og íhugunarorða í tilefni dagsins. Fjölmennum

Sighvatur Karlsson, 29/3 2009

Fjölsótt æskulýðsmessa

Æskulýðsmessan s.l. sunnudag 22. mars var vel sótt að þessu sinni. Fermingarbörn tóku virkan þátt í henni ásamt börnum úr sunnudagaskólanum, Kirkjukórnum og organista. Formið var frjálslegt og höfðaði til barnanna. Fermingarbörnin fluttu hugvekju út frá 23. Davíðssálmi og starfsfólk sunnudagaskólans fluttu brúðuleikrit. Vinsælir hreyfisöngvar hreyfðu við kirkjugestum, ungum og öldnum.

Sighvatur Karlsson, 29/3 2009

Myndband fyrir foreldra fermingarbarna

Ágætu foreldrar fermingarbarna. Þar sem ég hef ekki póstfangalista foreldra fermingarbarna þá langar mig að koma þessum skilaboðum til þeirra. Þetta er myndband sem þjóðkirkjan tók saman og er ætlað foreldrum fermingarbarna. Gangi ykkur svo vel við undirbúning fermingarveislunnar: http://www.youtube.com/watch?v=YdV4KY9DjOs

Með bestu kveðju

Sighvatur

Sighvatur Karlsson, 29/3 2009

Fermingar

Hér birtast nöfn barna er fermast í Húsavíkurkirkju á næstunni.

Lesa áfram …

Sighvatur Karlsson, 28/3 2009

Bjarni Ólafsson er látinn

Bjarni Ólafsson, Pálsgarði 2., Húsavík lést á Sjúkrahúsi Húsavíkur 6. mars. Útför hans verður gerð frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 21. mars kl. 14.

Sighvatur Karlsson, 18/3 2009

Hólmfríður Kristjana Grímsdóttir er látin

Hólmfríður Kristjana Grímsdóttir, Hvammi, lést 1. september 2008. Útför hennar var gerð frá Húsavíkurkirkju 13. september.

Sighvatur Karlsson, 16/2 2009

Húsavíkurkirkja er opin ferðafólki. Upplýsingar s. 464 2136. Verið velkomin í Húsavíkurkirkju til að skoða hana og eiga þar kyrrðarstund.

Viðtalstímar

Sighvatur Karlsson, sóknarprestur

Virka daga frá kl. 11-12 s. 464 1317, farsími 861 2317

Öðrum tímum eftir samkomulagi

sighvatur.karlsson@kirkjan.is

Meðhjálpari:
Guðbergur Ægisson s. 897 7836
Umsjón með útförum:
Margrét Þórhallsdóttir s. 860 7733
Kirkjugarðsvörður:
Hilmar Dúi Björgvinsson s. 898 8389

 

Húsavíkurkirkja. Sími 464 2136 , fax 464 1317 · Kerfi RSS