Dagskrá um Mærudaga 2010
Laugardagur 24. júlí kl. 10 fyrir hádegið
Sóknarprestur leiðir pílagrímagöngu frá kirkjutröppum umhverfis Botnsvatn og til baka. Hann leiðir helgihald á völdum stöðum. Snætt verður nesti inn við botn. Verið sæmilega skóuð og nestuð til fararinnar.
Opið hús í Bjarnahúsi frá kl. 14.00-16.00 Óvæntar uppákomur og veitingar í boði.
Sunnudagur 25. júlí
Mærumessa við Kvíabekk í Skrúðgarðinum kl. 14. Ída Maren Fannarsdóttir skírð. Sigurður Hallmarsson leikur undir á harmonikku og sóknarprestur þjónar. Að lokinni messu verður boðið upp á messukaffi í Bjarnahúsi.
Sighvatur Karlsson, 19/7 2010 kl. 15.30