Dagskrá kyrruviku og Páska
Pálmasunnudagur 28. mars. Gospelmessa kl. 11, Athugið breyttan tíma. Gospelkór Húsavíkurkirkju syngur undir stjórn Guðna Bragasonar. Sóknarprestur flytur fræðslu um tilurð helgidaganna í kyrruviku og páska.
Föstudagurinn langi. 2. apríl. Passíusálmar Hallgríms Péturssonar lesnir í heild sinni frá kl. 11 f.h. Göngufólk er hvatt til að líta við kirkjunni yfir daginn en áætlað er að lestrinum ljúki á fjórða tímanum eftir hádegið. Eftir fimmta hvern sálm er leikin klassísk tónlist af geisladisk.
Laugardagurinn, 3. apríl: Páskavaka kl. 23.30. Vakan er áhrifaríkt samvinnuverkefni fermingarbarna, foreldra þeirra og sóknarprests. Kirkjugestum gefst kostur á því að minnast skírnar sinnar. Norðlenska gefur Páskalamb sem gestum gefst kostur að smakka á í lokin. í kirkjudyrum þiggja allir páskaegg. Kirkjugestir eru beðnir að taka með sér kerti að heiman.
Páskadagur, 4. apríl: Hátíðarmessa kl. 10.30. Kirkjukór Húsavíkur syngur Hátíðarsöngva Bjarna Þorsteinssonar undir stjórn Judit György. Átta börn verða fermd. Allir eru velkomnir í messuna.
Sighvatur Karlsson, 27/3 2010 kl. 0.53